Hvað er Húðslípun?
Kristals og Demants Húðslípun er áhrifarík alhliða meðferð sem framkvæmd er með Silk Peel húðslípunartæki. Í meðferðinni er tvíþættri tækni beitt bæði grófslípun með kristalsögnum og fín slípun með demants stúti. Meðferðin vinnur á ysta yfirborði húðar þar sem verið er að hreinsa dauðar húðfrumur og önnur óhreinindi, örva blóðflæði og koma af stað endurnýjunarferli húðfrumna.
Með Húðslípun er verið að veita húðinni bæði grófa slípun og hreinsun. Húðin fær strax aukin ljóma eftir meðferð ásamt því að vera þéttari, mýkri og sléttari. Einnig verður húðin móttækilegri fyrir virkum efnum í kremum sem borin eru á andlitið og ásýnd svitahola sem og fínna lína verður minni.
Meðferðin hentar öllum aldurshópum og húðgerðum þar sem hún hjálpar yngri húð að hreinsa sig og viðhalda sér enn þéttir og styrkir eldri húð sem farin er að þynnast.